nú hef ég ekki bloggað í góða 8 daga og er það bara ágætt held ég.
fer að byrja aftur að gagnrýna bráðelega, er búinn að sjá, heyra og upplifa ýmsa hluti á þessum 8 dögum sem hægt er að gagnrýna. einnig hafa borist inn nokkrar tilbeiðnir um gagnrýni á hlutum og verður reynt að redda því eftir bestu getu.
en á morgun verður skellt sér í fínu fötin og farið á tónleika með ensími og brain police. þar sem ensími er ein sú allra besta hljómsveit sem ég veit um að þá er ég nokkuð viss um að ég eigi eftir að skemmta mér vel á þessum tónleikum og án efa gagnrýna þá. en ég bara hvet alla til að skella sér á þessa tónleika í sjallanum á morgun, föstudaginn 29. okt og eru miðar seldir í forsölu í gamestofunni, þar sem að holan var eitt sinn, á 1500 kr en miðaverð er 1800 kall við inngang. einnig má þess geta að stjórn ma var svo elskuleg og reddaði nemendum miðanum á 1000 krónur, sem er ekki neitt fyrir svona eðal tónleika.
svo má einnig geta þess að ég var í skálaferð með 2.x dagana 27. og 28. okt. var sú ferð mjög fróðleg, skemmtileg en líka dapur. það var allt frábært og yndislegt, ánægjan skein úr andlitum allra og menn sprautuðu rjómum upp í eyrun á einstaklingi sem vitað var að tæki því ekki vel. frábær skemmtun. svo var hæfileikakeppni sem by the way mitt lið, sítrónurnar, unnum með miklum tilþrifum. en seinni daginn skall á hörmung. var ég búinn að vera að ljósmyna á fullu, kominn með um 160 myndir úr öllum áttum og var að taka fleiri. en svo rak ég myndavélina upp í ljós, sem voru alltof lágt niðri, með þeim afleiðingum að myndavélinn féll úr greipunm mínum og beint á gólfið. skekktist linsan ágætlega mikið og er myndavél nú ónothæf og á sennilega ekki eftir að vera hægt að laga hana. ég og myndavélin áttum þó góðar stundir saman og mun ég minnast þeirra alla mína ævi. meigi hún hvíla í friði. en skálaferðin sjálf var frábær og fær hún hiklaust 4 stjörnur af fjórum mögulegum. fær matarnefnd og skemmtunar nefnd mikið hrós fyrir framlag sitt í ferðinni. má kannski búast við myndum hér á síðunni eða einhverstaðar annarstaðar.
skálaferð: ****
skrifað af criticts 17:41
criticts