þá er komið að því. það sem tveir menn hafa verið að bíða eftir.. hin eina og sanna umfjöllum um heimasíðuna nezitic.tk. ég hef tekið mér minn tíma og skoðað síðuna og túlkað hana út frá uppbyggingu hennar, bloggfærslum og mörgum öðrum smáatriðum. þannig að hér er afraksturinn.
# það fyrsta sem blasir við manni þegar farið er á nezitic.tk er mjög svo svartleit síða. segir það margt og getur þýtt ýmsa hluti svo sem svartsýni, bjartsýni, ögrun eða þunglyndi.
# mynd síðunnar, lemmonhead, er mjög symbolísk fyrir þessa síðu og finnst mér hún vera táknræn fyrir villimanninn í stjórnendum vefsins, sem er jú þó nokkur.
# tenglar vefsins eru framúrskarandi og skera sig augljóslega úr hvað varðar gæði á síðunni. þessi ljósi litur kallar fram það besta í stjórnendum vefsins. og er þó sérstaklega skemmtilegt að sjá hvað það eru líka frábærir tenglar yfir einstaklinga og síður. fá þeir nezitic menn sko plús í stílabókina fyrir það.
#teljarinn er lala og það sama má segja um komment kerfið en finnst mér samt komment kerfið vera byggt af frekar ótraustu fyrirtæki og verða ekki nefnd nein nöfn. þetta er svipað og að treysta epli fyrir öllum peningunum sínum.
# bloggfærslur þeirra hafa sínar góðu og slæmu hliðar og sína góðu og slæmu daga, bara svona eins og gengur og gerist. hafa þó bloggfærslur síðustu misseri verið frekar stöðugar og hefur maður alveg getað reitt sig á að það sé komin ný færsla á hverjum degi. þó hefur annar stjörnandinn verið að brasa mikið í sinni eigin myndasíðu og hefur þar af leiðandi skrifað eitthvað minna inn á nezitic.tk.
# uppbygging síðunnar er með besta móti og hafa stjórnendur vefsins augljóslega lagt mikið á sig við að gera þennan vef að því sem hann er í dag.
þannig að þegar þessir punktar hafa verið teknir saman og vandlega hugsaðir í gegn hef ég komist að þeirri niðurstöðu að nezitic.tk fær fjórar stjörnur af fjórum mögulegum og er þar með ágæt síða og mæli ég eindregið með því að fólk kíkki á þessa fjögrastjörnu síðu.
nezitic.tk: ****
skrifað af criticts 02:43
criticts