ég tók mig til og skellti mér á græna hattinn þar sem ómaði tónlist frá hljómsveitunum lada sport, tony the pony, kingstone og bob. hef ég ákveðið að fjalla hér stutt um þessa tónleika.
# það er nokkuð ljóst að maður þarf ekki flotta hárgreiðslu til að spila sérstaka og nýjungagjarna tónlist. þetta sannaði hljómsveitin bob svo sannarlega. meðlimir bob eru frá reykjavík og komu hingað norður til þess að kynna akureyringum og öðrum sem staddir voru á græna hattinum sína óvenjulegu tónlist. tónlist þeirra var eitthvað á þá leið að þetta var mjög svipað því þegar maður er að leika sér í tónlistar forritinu acid og setur alla taktana saman, sem verður því valdandi að mikil óhljóð heyrast. gott dæmi um frumleika hljómsveitarinnar er að annar gítarleikarinn spilaði á gítarinn sinn með fiðluboga en hafa þó aðrar erlendar hljómsveitir gert þetta líka, t.d. led zeppelin. en þetta var fróðlegt og spes.
# hljómsveitin kingstone stóð fyrir sínu eins og búast mátti við og naut ég þess að hlusta á þá. ég verð samt að segja að hljóðkerfið var ekki upp á marga fiska og heyrðist söngurinn afar illa. jón gísli fór á hamförum á trommunum, andri barði bassastrengina og þandi raddböndin með glæsibrag og viktor sló gítarstrengina og söng af stakri snilld. varð viktor og hljómsveitin þó fyrir því óhappi að það fór öryggi í gítar magnaranum þannig að það varð smá töf á fluttningi þeirra. það voru þó þeir andri og jón gísli sem skemmtu fólki á meðan með tónlist sem þeir sömdu á staðnum eftir því sem ég best veit, smá flipp.
# hlustaði ég ekki mikið á tony the pony þar sem ég var úti að fá mér ferskt loft en það sem ég heyrði var bara nokkuð gott. samt sum lög nokkuð svipuð en ég þarf bara að hlusta eitthvað aðeins meira á þá. þetta er örugglega hljómsveit sem venst vel með tímanum.
# svo var það hljómsveitin lada sport sem endaði þetta allt. Einkennir hana ekki bara flott nafn og frábær hljóðfæraleikur heldur eru meðlimir hennar all svakalegir. það var skemmtilegt að horfa á þá og hlusta og er ég ekki frá því að það hafi verið lada sport og kingstone sem stóðu upp úr á þessum tónleikum.
Margt var um fólk á græna hattinum þegar fyrsta hljómsveitin steig á svið en eftir að kingstone voru búnir að spila fór fólkið hægt og bítandi að tínast út í hópum og misstu þar með af eðal tónlist frá hljómsveitinni lada sport. en þetta var bara hin ágætasta skemmtun og gæti vel verið að maður láti sjá sig á öðrum tónleikum þessara hljómsveita þegar þeir verða einhvern daginn
bob: **
kingstone: ***
tony the pony: **
lada sport: ***
skrifað af criticts 20:18 criticts