sunnudagur, október 03, 2004
collateral

hér er á ferðinni mynd sem fjallar um leigumorðingja sem ekur á milli fórnalamba sinna í leigubíl sem keyrður er af manni að nafni max (jamie foxx) og verður max að reyna allt sem hann getur til að koma í veg fyrir að vincent (tom cruise) nái að drepa þá sem hann ætlar sér og einnig að koma sjálfum sér í gegnum alla þessa martröð á lífi.

þetta er myndin í hnotskurn og verð ég að segja að hún er bara nokkuð góð. jamie foxx er alveg þolanlegur og þrátt fyrir að ég sé ekki mikill fan að þá er hann bara bærilegur í þessu hlutverki. svo er það náttúrulega tom cruise sem fer á kostum sem hinn ofursvali leigumorðingi vincent sem er svona know-it-all gaur sem gerir myndina mjög skemmtilega. hann hefur verið að vinna sem sjálfstæður leigumorðingi í 6 ár og lætur aldrei koma sér á óvart, hefur semsagt alltaf lausn á öllu og lætur engan bilbug á sér finna. jamie foxx leikur mann sem hefur verið að keyra leigubíl í 12 ár og segir alltaf að það sé bara tímabundið þangað til að hann geti byrjað með sitt eigið fyrirtæki. þetta er basicly svona gaur sem þykist vita allt um allt, voða veraldarvanur maður en veit ekkert hvað hann á að gera við sjálfan sig.

myndatakan í myndinni er mjög góð og frumleg og virðist sem sumar senur séu bara teknar upp með venjulegri handcameru sem gerir þær mikið raunverulegri og flottari.

annars er söguþráðurinn í myndinni fínn en mér leist mjög illa á endinn. endirinn var alls ekki góður of hefði verið hægt að enda myndina miklu betur. ætla ég ekki að fara að upplýsa það hvernig hún endar þar sem sennilega einhverjir sem lesa þetta eiga eftir að sjá myndina og vil ég ekki skemma fyrir þeim.

en eins og ég segi að þá er þetta bara nokkuð góð mynd á heildina litið og hef ég ákveðið að gefa henni 3 stjörnur af 4 mögulegum og er það aðalega endirinn sem dregur þessa mynd niður.

collateral: ***


skrifað af criticts 21:44 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3