nýjasti diskur the prodigy always outnumbered never outgunned kom út nú fyrir stuttu á þessu ári og er þetta fimmti diskurinn sem gefinn hefur verið út. það hefur þó ekki komið diskur út frá prodigy í ein 7 ár en þessi diskur átti að koma út árið 2002. lagið baby´s got a temper var fyrsta lagið sem gefið var út af þessum væntanlega disk þeirra en eftir að það hafði verið í spilun í þó nokkurn tíma ákvað liam howlett forsprakki the prodigy að henda því í ruslið og byrja uppá nýtt. hann rak keith flint og maxim úr hljómsveitinni en fóru þeir aldeilis á kostum á plötunni fat of the land. eftir tveggja ára bras og brölt hjá liam kemur út nýr diskur sem ber heitið always outnumbered never outgunned.
ég tók mig til og hlustaði á þennan disk einn daginn. maður heyrir strax að diskurinn er ekki vitund líkur disknum fat of the land sem kom út árið 1997. liam hefur greinilega ferðast enþá lengra aftur í tímann og farið að semja í svipuðum stíl og hann gerði þegar diskurinn music for the jilted generation kom út árið 1995. get ég ekki sagt að þetta sé með betri diskum sem komið hefur út frá the prodigy en fyrir þá sem eru miklir aðdáendur sveitarinnar að þá ætti þessi diskur ekki að valda þeim vonbrigðum. á þessari plötu vitnar liam mikið í gömul lög frá öðrum hljómsveitum. til dæmis má greinilega heyra part úr thriller með michael jackson í laginu the way it.
mér líkar þessi diskur ágætlega og get ég alls ekki verið sammála bigga í maus um að þessi diskur sé vonbrigði ársins. þanngi að ég gef þessum disk þrjár stjörnur af fjórum mögulegum.
the prodigy - always outnumbered never outgunned: ***
skrifað af criticts 22:46
criticts