medulla er nýjasti diskur bjarkar
frumlegur og framandi, því getur enginn neitað en tel ég að skemmtanagildi hans sé ekki eitthvað til að hrópa húrra fyrir. það bregður alveg fyrir eitt og eitt gott lag en margt á þessum disk má líkja við blautann hund.
fyrir þá sem ekki vissu að þá eru ekki notuð nein hljóðfæri í lögunum heldur einungis raddir fólks og má nefna að rahzel sem hefur gert garðinn frægann sem mennskt beatbox og er einnig í hljómsveitinni the roots kemur mikið fyrir á disknum og einnig má finna rödd mike pattons, sem var söngvari faith no more, á disknum en hefur hann og rahzel verið að vinna mikið saman uppá síðkastið og má sem dæmi nefna að þeir komu fram á reading hátíðinni sem haldin var ekki fyrir svo löngu. einnig má til gamans geta að diskurinn var tekinn upp á 18 mismunandi stöðum í heiminum, þar á meðal new york, íslandi, feneyjum og kanarí eyjum.
er þessi diskur ekki fyrir alla en fyrir suma verður þessi diskur sem himnasending. þó mér hafi ekki verið skemmt allann tímann á meðan ég hlustaði á þennan disk að þá var þetta fróðlegt og eitthvað glænýtt þannig að medulla fær þrjár stjörnur af fjórum möguleikum fyrir frumleika, mikla vinnu og ágætis skemmtanagildi.
björk - medulla: ***
skrifað af criticts 19:28
criticts