hér er á ferðinni eitt enn meistaraverkið eftir quentin tarantino og er ég bara nokkuð viss um að þessi mynd slái út þá fyrri en er það ekki eitthvað sem skiptir máli því að maður þarf að sjá báðar myndirnar. þetta er basicly bara ein mynd í 2 pörtum. en uma thurman stendur sig eins og hetja í þessari mynd ásamt david carradine sem lék hinn ofur svala Bill með miklum kostum og fannst mér það magnað miðað við það að hann er 2 árum frá því að vera sjötugur. myndin er snjöll og er mikið af skemmtilegum bardagaatriðum og er pai mei (sá sem kenndi umu thurman að slást í myndinni) svo fyndinn að hálfa væri nóg.
það er leiðinlegt þegar gagnrýnendur fara eitthvað að tala um um myndina og missa svo útúr sér eitthvað mikilvægt atriði í myndinni eða eitthvað sem á að vera surprise. þannig að ég ætla bara hér með að sleppa því að segja um hvað myndirnar eru og bara segja ykkur hvað mér fannst um myndina og hvernig leikararnir stóðu sig og svo framvegis.
en kill bill vol. 2 fær hiklaust 4 stjörnur sem og kill bill eitt og saman eru þetta msm myndir. einnig eru 2 aðrar msm myndir frá quentin tarantino og eru það myndirnar reservoir dogs og pulp fiction.
kill bill vol. 2: **** msm
skrifað af criticts 13:01
criticts