laugardagur, september 25, 2004
bang gang

hreint út sagt frábært! þetta var með því besta sem ég hef farið á í sumar. þetta var svo magnað að það er ekki til nógu sterk orð yfir það hversu skemmtilegt þetta var.

þar sem að ég hef hlustað á bang gang frá því að fyrsti diskur þeirra kom út að þá var þetta viss upplifun að sjá þetta svona live. ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast en ekki bjóst ég nú við þessu.. þetta byrjaði nú ekki vel þar sem það voru einhverjar tafir á tónleikunum vegna einhverra tæknilegra örðuleika. ég lét það ekki á mig fá og sat bara hinn rólegasti í sæti mínu. svo mættu þau á sviðið, védís hervör arnadottir og svo trommuleikarinn og hljómborðsleikarinn sem ég hafði nú ekki séð áður. svo byrjuðu hljómarnir að flæða um salinn og var þá farið að hljóma lagið inside, upphafslag plötunnar something wrong. söng védís hervör eins og engill og stóð hún sig með stakri prýði en þó sást hvergi til barða og restinnar af hljómsveitinni. en maður hugsaði lítið um það og hlustaði á það sem var að gerast beint fyrir framan mann. svo um leið og trommarinn byrjaði að tromma að þá löbbuðu inn í salinn barði ásamt gítarleikaranum og bassaleikaranum og ætlaði þá allt um koll að keyra og byrjuðu allir að klappa sem mér fannst reyndar frekar heimskulegt þar sem þetta var inn í miðju lagi og aumingjans védís var að reyna að syngja í gegnum allt klappið. en þegar þeir voru komnir uppá svið tóku þeir sér hljóðfæri í hönd og byrjuðu að spila. og þá hófust tónleikarnir að alvöru.

þau tóku öll helstu lögin af something wrong og má þar nefna lög á borð við follow, forward and reverse, find what you get, stop in the name of love og svo tiltillag plötunnar, something wrong. einnig voru tekin gömul lög af disknum you þar sem bandið fór gjörsamlega á kostum og var þetta svo mikil snilld að ég get ekki hætt að segja hvað það var mikil snilld. barði er náttúrulega algjör snillingur og var ekki að spurja að því að hann fór alveg á kostum hvort sem hann var að spila og syngja eða að skjóta hnitmiðuðum gamanorðum til áhorfenda milli laga. troomuleikarinn var einnig afburðargóður þrátt fyrir háan aldur. svo stóð restinn af hljómsveitinni sig líka eins og hetjur. gítarleikarinn glamraði á gítarinn líkt og barði og bassa leikarinn sló bassann og á milli þess luft-trommaði hann og var með luft-hljómborðsleik sem var nokkuð skemmtilegt. og hljómborðsleikarinn vissi allann tímann hvað hann var að gera.

öll umgjörðin í kringum tónleikana var bara nokkuð góð. hljóðið var til fyrirmyndar og þegar bassatromman hljómaði að þá fann maður fyrir því. og bassinn ómaði vel og söngurinn líka þannig að ekkert er hægt að setja útá hljóðið. svo var lýsingin bara mjög góð. nema hvað að eitt ljósið fór alltaf í augað á manni með svona 15 sec millibili þarna í einhverjum 2-3 lögum þannig að manni var farið að verkja svoltið í augað en maður harkaði það nú bara af sér. En ég segi það enn og aftur að þessir tónleikar voru hrein snilld og fá þeir fimm stjörnur af fjórum mögulegum fyrir hátt skemmtana gildi, frumleika og bara magnað show.

bang gang tónleikar: ***** aumingja þið ef þið misstuð af þessu


skrifað af criticts 17:05 criticts

- Útvarp -
we are the night - chemical brothers
the world is yours - ian brown
in rainbows - radiohead
mars volta diskar
- skrifaðir mánuðir -
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
mars 2008
maí 2008
janúar 2009
- diet pepsi -
tryggvip&birkirk / heidi / raggi / jón&hrönn / benni / strandgatan / gudni / ragga / katrin
- fresja -
thorvalds*myndir / allmusic / ctrl+alt+del / imdb / fotbolti.net / tv.com / muninn
- bands -
depeche mode / bloc party / modest mouse / dfa1979 / interpol / kaiser chiefs / kasabian
- wallpaper -
wallpaper nr.1 / wallpaper nr.2 / wallpaper nr.3